is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14680

Titill: 
  • Samfélagsleg ábyrgð 50 stærstu fyrirtækja Íslands. Fylgja efndir orðum?
  • Titill er á ensku Corporate social responsibility of Iceland's 50 largest firms
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Markmið rannsóknarinnar er að skoða samfélagslega ábyrgð hjá 50 stærstu fyrirtækjum Íslands, en umræða um slíka ábyrgð hefur verið að aukast með meiri þekkingu og skilningi. Ekki er lengur eingöngu átt við styrki til góðgerðarmála, íþróttastarfsemi og menningarmála, heldur hafa áherslur á kröfur og væntingar frá ýmsum hagsmunahópum einnig komið til sögunnar.
    Í rannsókninni var athuguð birting upplýsinga á vefsíðum um samfélagslega ábyrgð hjá 50 stærstu fyrirtækjum á Íslandi. Rannsakað var í fyrsta lagi hvort fyrirtækin birti stefnu sína eða gildi á vefsíðum og hvort þar sé að finna ákvæði um samfélagslega ábyrgð. Í öðru lagi var tekið saman yfirlit um birtingu upplýsinga á vefsíðum fyrirtækjanna um efndir á stefnu um samfélagslega ábyrgð og úr þeim upplýsingum var síðan unnið yfirlit um helstu áherslur fyrirtækjanna í samfélagslegri ábyrgð.
    Rannsóknin tók mið af erlendri fyrirmynd þar sem farið var í gegnum skýrslur 50 stærstu fyrirtækja heims um samfélagslegu ábyrgð þeirra. Í erlendu rannsókninni voru teknar saman upplýsingar út frá níu viðmiðum sem áttu sér stoð í viðmiðum UN Global Compact annars vegar og hins vegar úr leiðbeiningum frá Global Reporting Initiative.
    Helstu niðurstöður um 50 stærstu fyrirtæki á Íslandi voru að um 66% fyrirtækjanna hafa ákvæði um samfélagslega ábyrgð í einhverri mynd í stefnu sinni. Fylgni var á milli þess að hafa stefnu í slíkum málum og svo að birta upplýsingar um efndir og helstu áherslur fyrirtækjanna eru á viðskiptavini, mannauðsmál og umhverfismál.

  • Útdráttur er á ensku

    The aim of this paper is to examine corporate social responsibility (CSR) among the 50 largest companies in Iceland, as discussions about CSR has been increasing lately. It is no longer just about grants to charities, sports and culture, but due to increased focus on the needs and requirements of various stakeholders the focus has broadened.
    The study focused on if and how the companies used their websites to inform about their strategies on CSR and how and what they report on their CSR. The study was based on a foreign study on corporate social responsibility in Fortune magazine‘s to 50 companies. Performance was evaluated against a defined set of criteria based on the UN Global Compact principles and Global Reporting Initiative guidelines.
    The main conclusions are that 66% of the Icelandic companies have a strategy about CSR. There was a correlation between having a policy on the matter and reporting on the CSR. The three top focus items in the reports was on customer relations, human resources and the environment.

Samþykkt: 
  • 3.5.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/14680


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
DKL MS Ritgerd lokaskjal.pdf1.62 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna