Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14729
Rekstrarhagfræðilegar greiningar og rannsóknir á hagkvæmni í útboðum ganga nær undantekningalaust út frá því að hagkvæmni sé summa ábata kaupanda og seljanda. Í þessari ritgerð er ætlunin að kanna hvort ástæða sé til að bæta við lið sem tekur á allratapi sem kröfu umfram þörf. Gengið er útfrá því að ef varan í uppboðinu uppfyllir þörfina, þá skili hún kaupanda fullum ábata. Ef varan hefur hinsvegar eiginleika umfram þörf þá skili þeir engum auka ábata. Þá mun auka kostnaður vegna umframeiginleika eingöngu verða að allratapi í formi sóunar. Netþjónar eru eitt dæmi um vöru þar sem vissir umframeiginleikar skila ekki auknum ábata til kaupanda og verða þeir notaðir sem viðmið í rannsókninni.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Um hagkvæmni útboða HM.pdf | 578.74 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |