is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14745

Titill: 
  • Reimleikar í Reykjavík: Draugasögur úr miðbænum
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Verkefnið Reimleikar í Reykjavík byggir á söfnun minni á sögum sem fjalla um reimleika í miðbæ Reykjavíkur. Sögurnar í verkefninu eiga það sameiginlegt að gerast á þekktum stöðum í miðborginni, til dæmis Þjóðleikhúsinu og Dómkirkjunni. Þær eru fengnar víðsvegar að og eru misjafnar að aldri, nánar tiltekið frá miðri 19. öld til dagsins í dag.
    Hagnýti hluti verkefnisins er handrit að bók þar sem sögurnar birtast ásamt stuttri umfjöllun um hvern stað fyrir sig. Sögurnar í bókinni eru fengnar úr þjóðsagnasöfnum, dagblöðum, tímaritum, útvarpi og vefmiðlum. Einnig leitaði ég beint til fólks og notaði frásagnir þeirra í umfjöllun minni.

    Í greinargerðinni, sem er fræðilegi hluti verkefnisins, er fjallað um þá aðferðafræði sem notuð var við vinnslu bókarinnar. Auk þess er efnið tengt við kenningar fræðimanna og meðal annars er leitað svara við því hverjar helstu ástæður reimleika í sögunum eru og hvaða gildi þessi sagnaarfur og söfnun hans hefur fyrir samfélagið.

Athugasemdir: 
  • Höfundur lokaði aðganginum til 1.5.2020. Aðgangi lokað til 6.5. 2017 skv. fyrirmælum frá Sagnfræði- og heimspekideild.
Samþykkt: 
  • 6.5.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/14745


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Reimleikar í Reykjavík.pdf3 MBOpinnHandrit að bókPDFSkoða/Opna
Greinargerð.pdf1.07 MBOpinnGreinargerðPDFSkoða/Opna