is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14747

Titill: 
  • Kill the gay´s: Umræður um samkynhneigð í Úganda
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Það var ekki fyrr en árið 1992 sem samkynhneigð var tekin af lista yfir geðsjúkdóma hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni. Árið 2013 telst hún enn vera sjúkdómur í mörgum ríkjum Afríku og er þar litið á hvíta manninn sem smitberann. Í Afríkuríkinu Úganda hefur verið lagt fram fyrir þingið frumvarp til þess að vernda fjölskyldugildin í Úganda. Hljóðar frumvarpið upp á það að ef einstaklingur finnst sekur um að stunda kynlíf með öðrum einstaklingi af sama kyni verði sá hinn sami dæmdur í lífstíðarfangelsi. Ef einstaklingur stundar hins vegar kynlíf með öðrum einstaklingi af sama kyni sem er yngri en 18 ára á að vera hægt að dæma hann til dauða.
    Samkynhneigðir eiga undir högg að sækja í Úganda og fleirum Afríkuríkjum en víða má finna baráttufólk sem er tilbúið að berjast fyrir rétti sínum og annarra og vill að samkynhneigð sé talin jafn eðlileg og gagnkynhneigð. Það er þó ekki raunin allsstaðar og í þessari ritgerð er Úganda tekið sérstaklega sem dæmi um orðræðuna sem á sér stað og athyglinni beint að ofangreindu frumvarpi. Eins verður fjallað um þá umræðu sem hefur skapast út frá frumvarpinu bæði í Úganda og alþjóðasamfélaginu.

Samþykkt: 
  • 6.5.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/14747


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Elísabet Dögg Sveinsdóttir.pdf390.36 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna