Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1481
Handbókin GLINGUR - Handbók um skartgripagerð með nemendum á elsta stigi grunnskóla er sett fram sem upplýsinga- og uppflettirit handa nemendum og kennurum. Í handbókinni er útskýrt hvernig hægt er að nýta sér pappír, leir, gler og málm í skartgripagerð. Í hverjum kafla er fjallað um eitt efnanna og eiginleika þess auk áhalda og verkfæra sem henta hverju sinni. Hver kafli inniheldur 1-3 verklýsingar sem nemendur geta unnið skartgripi eftir í sjálfstæðri vinnu. Í lok hvers kafla er fjallað um hvernig hægt sé að skreyta skartgripina. Áhersla er lögð á eigin hönnun og opnar verklýsingar. Handbókin er ætluð til að ýta undir áhuga nemenda á hönnun og handverki og hvetja til sjálfstæðrar sköpunar með því að auka skilning og þekkingu nemenda á eiginleikum efnanna og vinnuaðferðum.
Lykilorð: listgreinar, myndmennt, hönnun, skartgripagerð, smíðar, listir, listgreinakennsla, handbók, kennsluefni, kennslugögn, verklýsingar, sköpun, handverk, skartgripir.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
GLINGUR - greinargerd.pdf | 185.64 kB | Opinn | GLINGUR - greinargerð með lokaverkefni (heild) | Skoða/Opna | |
GLINGUR - handbok.pdf | 3.87 MB | Opinn | GLINGUR - Handbók um skartgripagerð (heild) | Skoða/Opna |