Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14822
Myndasöguhandritið, Ormhildur, gerist í myrkri framtíð þar sem jöklarnir hafa bráðnað og flætt yfir láglendi Íslands. Undan jöklunum skriðu öll þjóðsagnarkvikindi landsins sem höfðu legið í dvala. Aðalsöguhetjan heitir Ormhildur, hún er nörd sem vinnur hjá KGRR, Kukl og galdrarannsóknarsetri ríkisins. Vinnan felst í þvi að finna galdraþulur og galdraráð til að berjast gegn þjóðsagnaróvættunum sem tekið hafa yfir Fróneyjar. Einn daginn finnur hún galdur sem á að geta læst öll skrímslin aftur inn í klakabrynjuna og endurheimt gamla Ísland. Ormhildur leggst af stað í ævintýraleiðangur til þess að bjarga landinu úr klóm þjóðsagnaróvættanna.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
ORMHILDUR_myndasöguhandrit_ÞóreyMjallhvít.pdf | 22.33 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |