is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Rafræn tímarit > Stjórnmál og stjórnsýsla >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14842

Titill: 
  • Akademískt frelsi
Útgáfa: 
  • Desember 2012
Útdráttur: 
  • Í greininni er fjallað um akademískt frelsi og leitast við að skýra það og hlutverk þess. Farið er nokkrum orðum um hlutverk háskóla til að gera grein fyrir bakgrunni akademísks frelsis. Gerður er greinarmunur á tjáningarfrelsi og akademísku frelsi og því haldið fram að þessar tvær frelsisreglur séu röklega óháðar hvor annarri. Sömuleiðis verður að skilja á milli þröngs og víðs skilnings á akademísku frelsi. Í greininni er leitast við að skýra akademískt frelsi þröngt þannig að það nái einungis til þeirra sem starfa við háskóla og uppfylla tilteknar þekkingarkröfur og starfa þeirra við þá. Leitast er við að rökstyðja að hafna beri víðum skilningi á akademísku frelsi, að akademískar kröfur eigi við á vettvangi samfélagsins. Skoðað er dæmi þar sem til álita kemur að beita víðum skilningi en því hafnað. Að lokum er því haldið fram að í háskólum sé óhjákvæmilegt að stunda rannsóknir á sviðum sem gagnast ekki umhverfinu í þröngum skilningi en eru mikilvæg í starfsemi háskóla og fyrir þá sem rannsaka og kenna á þessum sviðum. Þessi fræðaiðkun getur einnig komið samfélaginu til góða.
    Efnisorð: Akademískt frelsi, tjáningarfrelsi, hlutverk háskóla

Birtist í: 
  • Stjórnmál og Stjórnsýsla, 2012, 8 (2), bls. 265-280
ISSN: 
  • 1670-6803
Athugasemdir: 
  • Fræðigrein
Samþykkt: 
  • 6.5.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/14842


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
a.2012.8.2.4.pdf303.91 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna