is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14850

Titill: 
  • Ef strákar eru bara strákar, læra þá stelpur að vera fórnarlömb? Hefur uppeldi stráka áhrif á að þeir beiti kynferðislegu ofbeldi?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Ritgerð þessi er lokaverkefni mitt til BA-gráðu í félagsfræði við Háskóla Íslands. Fjallað verður um hvort það sé eitthvað í uppeldi drengja sem geti leitt til þess að þeir beiti konur kynferðislegu ofbeldi á fullorðinsárum. Í því ljósi var félagslegur veruleiki kynjanna skoðaður ásamt þeim karlmennskuhugmyndum sem ríkja í samfélaginu. Einnig var skoðað hvort að jafnrétti kynjanna hafi haft þau áhrif að nauðgunartíðni lækki, þar sem breytt viðhorf stuðli að jafnara samfélagi og breyttum viðhorfum til hefðbundinna kynhlutverka. Eðli og veruleiki nauðgana var síðan skoðaður með tilliti til kyns og notast var við félagsfræðilegar og femínískar kenningar við kenningarlega nálgun nauðgana. Greint var frá þeim áhrifaþáttum sem geta ýtt undir það að karlar beita konur kynferðislegu ofbeldi. Niðurstöður ritgerðarinnar voru þær að þeir drengir sem alast upp við erfiðar uppeldisaðstæður svo sem fátækt, misrétti og ofbeldi séu líklegri heldur en aðrir til þess að beita konur kynferðislegu ofbeldi seinna meir. Þeir drengir sem alast upp í jafnréttissinnuðum samfélögum eru líklegri til þess að hafa heilbrigðari viðhorf til kvenna í samfélaginu. Nauðgunartíðni hérlendis hefur ekki aukist í gegnum árin en er engu að síður há, leiða má líkur að því að konur hér á landi séu líklegri til þess að kæra slíka glæpi heldur en þær konur sem búa við feðraveldi þar sem nauðgunartíðni mælist lág.

Samþykkt: 
  • 6.5.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/14850


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BA-Ritgerð-Kristín.pdf526.76 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna