is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1489

Titill: 
  • Lesið í skóginn - skólaverkefni : kennslufræði og hugmyndir fyrir grunnskóla.
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þessi ritgerð fjallar um tilurð, umfang og tilgang þróunarverkefnisins Lesið í skóginn með skólum (LÍS). Byggt er á niðurstöðum þátttöku 9 skóla í Reykjavík auk 7 skóla á landsvísu, þess hugmyndasafns sem þar varð til auk nánari útfærslu og reynslu höfunda af þessu kennsluformi. Gerð verður grein fyrir mögulegri samþættingu LÍS við nýjar áherslur í Aðalnámskrá grunnskóla frá 2007 og mikilvægi áframhaldandi þróun verkefna og aðgengi þeirra. Við munum sýna fram á hvernig styrkja má kennslufræðilegan grunn með því að tengja LÍS við þekktar kenningar í útinámi vestanhafs. Til að ná því markmiði munum við styðjast við kenningar Joseph Cornell. Áherslur hans í skógarkennslu verða nýttar til framsetningar verkefnablaða. Þau geta síðar myndað verkefnasafn sem styður áframhaldandi þróun LÍS. Með þessu móti er styrkum stoðum skotið undir kennslufræði og kennsluaðferðir sem geta markvisst eflt þroskaþætti nemenda með vinnu tengdri skóginum.
    Lykilorð: Lesið í skóginn, útikennsla, náttúrufræði, samþætting, umhverfismennt, leikir.

Athugasemdir: 
  • Grunnskólabraut
Samþykkt: 
  • 24.6.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1489


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
lokaverkefni vefur 2007.pdf2.28 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna