is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14988

Titill: 
  • Stórfelldar líkamsárásir: Rannsókn á þróun brota gegn 218. gr. hegningarlaganna árin 2000 - 2011
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Fjölmiðlar fjalla í auknum mæli um líkamsárásir og alvarleika þeirra. Sú umfjöllun er ekki alltaf í samræmi við þróun í fjölda brota enda virðist þeim fækka. Til að skoða þetta nánar voru kærur til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna brota gegn 218.2 gr. almennra hegningarlaga á árunum 2000, 2006 og 2011 skoðaðar nánar. Markmið rannsóknarinnar var að athuga hvort breyting hafi orðið á eðli brotanna og þá sérstaklega hvort þau séu að verða alvarlegri. Niðurstöður rannsóknarinnar bentu til þess að töluverð breyting hafi orðið á eðli stórfelldra líkamsárása. Brotin virðast vera framkvæmd af nánum einstaklingum í meira mæli en áður auk þess sem hlutfall brota sem framkvæmd eru við heimili og einkalóð annars vegar og á og við skemmtistaði hinsvegar er orðið jafnara. Greining á vopnbeitingu, alvarleika árása og áverka og hlutfalli gerenda og þolenda benti til aukins alvarleika í stórfelldum líkamsárásum á höfuðborgarsvæðinu.

Samþykkt: 
  • 8.5.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/14988


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BA - Fannar Kristmannsson.pdf706.26 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna