Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1500
Útikennsla er áhugaverð vinnuaðferð þar sem nemendur upplifa náttúruna á heilbrigðan hátt og tengja þannig nám sitt við raunveruleikann. Komið hefur í ljós að með þessari aðferð er líklegra að námið skili árangri og meiri ánægju meðal nemenda. Í þessu lokaverkefni er fjallað um útikennslu og útinám með áherslu á náttúrufræði og samþættingu við aðrar námsgreinar. Verkefnið miðast við kennslu á miðstigi þar sem Elliðaárdalurinn er útgangspunkturinn. Unnið er út frá útikennslulíkani sem byggist upp á undirbúningsvinnu, vinnu á vettvangi og úrvinnslu. Verkefnið hentar kennurum og nemendum sem hafa áhuga á útikennslu og vilja nýta sér verkefni af ýmsu tagi tengdri henni. Þó að verkefnið miðist við Elliðaárdalinn, er allt eins hægt nýta það á ýmsum stöðum í náttúrunni. Hér eru tillögur og hugmyndir og er það undir hverjum kennara komið hvort og hvernig þeir nýta sér þau.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
lokaverk.pdf | 14.74 MB | Lokaður | Heildartexti |