Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/15011
Er rétt að breyta af sannfæringunni einni saman? Í þessari ritgerð er leitað svara við þessari rannsóknarspurningu frá nokkrum mismunandi sjónarmiðum, m.a. út frá ritdeilu Williams K. Cliffords og Williams James. Í ritgerðinni „Rétturinn til sannfæringar“ kemst Clifford að þeirri niðurstöðu að það sé ævinlega rangt að mynda sér skoðun á ófullnægjandi forsendum. William James var ekki á sama máli og Clifford og svarar honum í ritgerð sinni „Trúarvilji“. Í ritgerðinni hrekur James rök Cliffords og færir rök fyrir því að við megum, að gefnum vissum forsendum, taka þá trú sem okkur sýnist.
Í fyrsta kafla skoða ég rök Cliffords og James og velti fyrir mér hvar ágreiningur þeirra liggur. Í lok kaflans tengi ég umræðu þeirra við rannsóknarspurningu þessarar ritgerðar. Í öðrum kafla lít ég á forvera þeirra, John Stuart Mill, sem fjallaði um svipað málefni í bókinni Frelsið, og skoða hvaða ljósi rök hans fyrir hugsunarfrelsi og málfrelsi varpa á spurninguna. Í þriðja kafla dreg ég saman umfjöllunina um Clifford, James og Mill með það að markmiðið að svara rannsóknarspurningunni „Er rétt að breyta af sannfæringunni einni saman?“
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Haukur Páll Jónsson.pdf | 267.56 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |