is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > B.A. verkefni - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/15053

Titill: 
  • Skörun listgreina. Um ekfrasis eða myndlýsingar í bókmenntum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Myndlýsing eða ekfrasis er bókmenntalegt stílbragð sem er notað til þess að lýsa hlut eða fyrirbæri þannig að það varpi upp skýrri mynd í huga lesandans svo að viðfangsefnið standi ljóslifandi fyrir hugskotsjónum hans. Þetta stílbragð er jafngamalt sagnahefðinni og er að finna strax í einhverjum elstu bókmenntum Vestur-Evrópu. Forngrikkir voru sér vel meðvitaðir um ekfrasis og var skilgreining þeirra víð og notagildi mikið, til að mynda er fjallað um það í Progymnasmata, sem er leiðbeiningarrit fyrir nemendur í ræðulist. Gotthold Ephraim Lessing, hinn þýski átjándu aldar menningarfrömuður, skrifaði verk sitt Laókóon (útg. 1766), um forna styttu af Laókóon og sonum hans. Þar ræddi hann um muninn á milli myndlistar og skáldskapar. Verkið markaði þáttaskil í bókmenntasögu Vesturlanda þar sem aldagömlum kenningum var varpað fyrir róða. Þrátt fyrir endurreisnartímabil og áherslu á fornmenntastefnu er eins og umræða um ekfrasis hafi legið í hálfgerðu þagnargildi allt fram til tuttugustu aldar. Á undanförnum árum hefur fræðileg umræða um myndlýsingu verið nokkur og í kjölfarið hefur skilgreining hennar tekið breytingum og nálgast skilgreiningu fornaldarmanna á ný.

Samþykkt: 
  • 10.5.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/15053


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Sólveig S. Hreiðarsd. Ekfrasis-BA-ritgerð.pdf392 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna