is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > B.A. verkefni - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/15075

Titill: 
  • Illa drottningin afbyggð: Hlutverk kyngervis í póstmódernísku fantasíuseríunni Krúnuleikarnir
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð mun ég fjalla um birtingarmynd kyngervis í Krúnuleikunum eftir George R.R. Martin og hvernig staða kvenpersóna innan fantasíuheimsins hefur tekið breytingum með innkomu póstmódernisma. Ég mun styðja mig við skilgreiningu Jean-François Lyotard á póstmódernisma með sérstakri áherslu á þá breytingu er hefur orðið í formgerð skáldsagna í nútímasamfélagi. Samfara skilgreiningu hans á póstmódernisma mun ég greina frá túlkun Judith Butler á kyngervi sem athöfn er hlýtur gildi sitt í gegnum endurtekningu og hugmyndum Joan Riviere á leiknu hlutverki kyngervis. Með þeirri sundrun er hefur orðið í frásagnamáta fantasíubókmennta sökum afbyggingar leiðarfrásagnarinnar, eða ‚meta-narrative‘ eins og hún er kölluð í enskri þýðingu, trúi ég að hafi skapast möguleiki fyrir því að afbyggja viðtekið kyngervi og mun ég rannsaka birtingarmynd þess í gegnum drottninguna Cersei Lannister. Sökum þess að lesandinn er aðeins kynntur fyrir Cersei í gegnum aðrar persónur verksins í fyrstu þremur bókum seríunnar eru henni tileinkaðir eiginleikar hinnar viðteknu illu drottningar vegna stöðu hennar innan valdaskipunarinnar. Það er ekki fyrr en í fjórðu bókinni A Feast for Crows sem að Cersei er sjálf sett í forgrunninn og gjörðir hennar eru útskýrðar út frá hennar eigin sjónarhorni. Sú sundurleitni sem einkennir sjálfsmynd hennar er því sköpuð í gegnum fyrirfram ákveðna staðla samfélagsins á kyngervi kvenna, sem afneitar löngun þeirra til að gegna valdamikilli stöðu.

Samþykkt: 
  • 10.5.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/15075


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Ba ritgerð- PDF.pdf366 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna