is Íslenska en English

Lokaverkefni

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > Kandídatsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/15176

Titill: 
  • Skimað fyrir ofbeldi á meðgöngu. Hvað svo? Höfum við fullnægjandi úrræði? Fræðileg úttekt
  • Titill er á ensku Screening for domestic violence during pregnancy. Then what? Do we have sufficient resources?
Útdráttur: 
  • Heimilisofbeldi á meðgöngu er ógn við öryggi, heilsu og líf verðandi móður og ófædds barns hennar. Tilgangur þessa lokaverkefnis var að skoða hvaða úrræði eru í boði hér á landi fyrir konur sem búa við heimilisofbeldi á meðgöngu, hvaða úrræði hafa reynst vel í öðrum löndum og hvort þau úrræði sem við höfum séu fullnægjandi. Einnig var skoðað hvert ljósmæður í mæðravernd gætu vísað þessum konum. Markmiðið var að draga fram stöðu þessara kvenna í heilbrigðiskerfinu og þörf þeirra fyrir úrræði og einnig að benda á stöðu og hlutverk ljósmæðra sem annast þessar konur í mæðravernd. Gerð var fræðileg samantekt á nýjustu rannsóknum um málaflokkinn. Auk þess var rætt við talskonur Samtaka um kvennaathvarf og Áfallamiðstöðvar Landspítala til að fá skýrari mynd á þau úrræði sem þar eru í boði. Niðurstöður leiddu í ljós að bestu úrræðin eru einstaklingsmiðuð og byggð á þverfaglegri og þver-stofnanalegri samvinnu. Hér á landi eru ýmis úrræði til en mikið skortir upp á tengingar og samvinnu milli fagstétta, stofnana og samtaka sem bjóða upp á úrræði og aðstoð fyrir konur sem búa við heimlisofbeldi. Auk þess hefur allri skráningu um heimilisofbeldi hér á landi verið ábótavant.

  • Útdráttur er á ensku

    Domestic violence during pregnancy is a threat to the safety, health and life of an expecting mother and her unborn baby. The purpose of this final thesis was to examine what resources are available here in Iceland for women living with domestic violence during pregnancy. Which resources have proven successful in other countries and whether the resources here in Iceland are sufficient. It was also observed where midwives in antenatal care could refer these women to. The aim was to highlight the circumstance of these women in the health care system, their need for resources and also to point out the roles and responsibilities of midwives caring for these women in antenatal care. Literature review was performed on latest researches on the issue. In addition, an interview with representatives of Samtök um kvennaathvarf and Áfallamiðstöðvar Landspítala was conducted to achieve a clearer picture of the resources available. The results showed that the best resources are personalized and based on interdisciplinary and inter-institutional cooperation. In Iceland there are various resources, but there is a need for connections and cooperation between professionals, institutions and organizations that offer resources and support for women living with domestic violence. In addition, registration of domestic violence in Iceland is insufficient.

Samþykkt: 
  • 23.5.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/15176


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
KATRÍN SIF SIGURGEIRSDÓTTIR.pdf431.45 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna