Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/15177
Tíðni átraskana fer vaxandi í hinum vestræna heimi. Átröskunarsjúkdómar herja mest á konur á barneignaraldri og geta fylgt þeim á meðgöngu. Brýnt er að finna konur með átröskunarsjúkdóma á meðgöngu til að draga úr áhættu fyrir móður og barn. Mikilvægt er að boðið sé upp á viðeigandi meðferðarúrræði innan barneignarþjónustunnar.
Tilgangur þessarar fræðilegu úttekar var að skoða átröskunarsjúkdóma á meðgöngu og svara þremur rannsóknarspurningum. Þær snúa að einkennum átraskana á meðgöngu, hvernig ljósmæður gætu skimað fyrir átröskunarsjúkdómum á meðgöngu og hjálpað konunum og hvernig hægt sé að styðja við heilsueflingu kvenna með átraskanir.
Niðurstöður fræðilegu úttektarinnar leiddu í ljós að átröskunarsjúklingar eru oft með töluverð einkenni sem hægt er að koma auga á og mögulegt er að finna atriði í sögu þeirra sem benda til átröskunar. Þá getur SCOFF skimunarlistinn verið gagnlegur í mæðravernd. Fræðsla í mæðravernd getur verið gagnleg og stuðlað að vellíðan konunnar og ófædds barns hennar.
Lykilorð: Átraskanir á meðgöngu, einkenni átraskana á meðgöngu og skimun fyrir átröskunum á meðgöngu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Átraskanir á meðgöngu, fræðileg úttekt.pdf | 561.08 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |