Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1521
Kvennaknattspyrna á Íslandi hefur eflst á undanförnum árum og góður árangur A-landsliðs kvenna á síðasta ári er gott dæmi um þennan árangur. Gengi knattspyrnuliða í efstu deild kvenna hér á landi hefur einnig vakið athygli þar sem umræðan hefur einnig beinst að miklum getumun liða í úrvaldeild. Þessi munur hefur leitt af sér að deildin hefur verið frekar ójöfn. Tilgangur þessarar rannsóknar var að skoða hvort þættir væru í umgjörð sem gætu valdið þessum mun og skoða hverjir það gætu verið ef einhverjir. Útgangspunkturinn í rannsókninni var að skoða hvort umgjörð hefur áhrif á árangur.
Þátttakendur í rannsókninni voru samtals 45 einstaklingar úr öllum níu úrvalsdeildar-liðum kvenna í knattspyrnu. Þátttakendur voru leikmenn, þjálfarar og formenn meistaraflokks-ráða kvenna. Notast var við spurningalista og viðtöl við öflun ganga.
Niðurstöðurnar leiddu í ljós að það er munur á umgjörð liðanna í úrvalsdeildinni og að umgjörð hefur áhrif á árangur. Þessi munur kemur þó ekki fram í öllum þáttum umgjarðar sem skoðaðir voru. Í ljós kom að stjórn og æfingaaðstaða skiptir minnstu máli fyrir árangur en þættir eins og starfslið, þjálfari og leikmannahópur skipta mestu máli. Ekki kemur fram marktækur munur á mati þátttakenda á umgjörð þegar liðin eru skoðuð eftir sætaröð.
Niðurstöðurnar á mati þátttakenda á umgjörð eru athyglisverðar þar sem fram kemur í rannsókninni að munur er á umgjörð liðanna eftir sætaröð. Liðin í efri hluta deildarinnar voru með betri umgjörð en liðin í neðri hlutanum. Niðurstöðurnar gefa þó í skyn að umgjörð hefur áhrif á árangur og því sé mikilvægt fyrir lið að huga að þáttum í umhverfi sínu til að ná sem bestum árangri.
Lykilorð: Kvennaknattspyrna, árangur, umgjörð.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
(Microsoft Word - fors.pdf | 70.14 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna | |
(Microsoft Word - meginm.pdf | 698.21 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |