is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/15264

Titill: 
  • Virkni þurrhreinsistöðva álvers Fjarðaáls í Reyðarfirði
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Það er ekki svo ýkja langt síðan að álver voru byggð og þau rekin án þess að umhverfismál væru efst á baugi. Nægir að fara aftur til upphafsára fyrsta álversins sem reist var á Íslandi en þegar rekstur hófst þar var engin tilraun gerð til þess að fanga eða hreinsa afgasið frá kerjum kerskálans. Kerin voru opin í gólfinu og afgasið slapp óhindrað út í skálana og þaðan út í umhverfið.
    Í dag er sem betur fer búið að girða fyrir möguleikann á því að svona viðgangist og eru fyrirtækin sjálf farin að leggja upp úr þvi að hreinsun sé með sem bestum hætti, bæði til hagsbóta fyrir umhverfið og ekki síður fyrir starfsfólkið. Ýmist er notast við þurrhreinsibúnað eða vothreinsibúnað við hreinsun útblásturs en í þessu verkefni er fjallað um virkni þurrhreinsibúnaðar. .
    Afsogskerfi eins og það sem fjallað er um hér er byggt upp á þann hátt að stöðugt sog er á hverju keri. Verði bilanir í þessum kerfum gefur það því auga leið að meira kergas sleppur út í skálana en gott þykir og mæld mengun frá álverinu eykst samfara því. .
    Lykilorð: Afsog, flúor, afgas, aukaafsog, loftflæði

  • Útdráttur er á ensku

    Up until not so many years ago aluminium smelters were being built and operated without environmental issues being a priority. As recently as when the first smelter was built in Iceland no attempt was made to capture or treat the pot gas coming from the potrooms. The pots were open without a hood and the fumes escaped easily to the environment. Today things have changed a lot and it has become one of the main prioritys of the companys who operate the smelters that as little of the fumes as possible escape into the environment, being a benefit both for the environment as well as the people who work there. Both dry scrubbers and wet scrubbers are being used when treating the fumes but in this project we will be focusing on the function of dry scrubbers. The gas evacuation system which is being looked at here is designed to provide a
    constant suction at each pot. In the case of malfunction in these systems it is clear that more of the pot gas escapes through the hoods of the pots then neccessary and the pollution from the smelter increases.
    Keywords: Draft, fluorine, pot gas, dual draft, airflow

Samþykkt: 
  • 29.5.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/15264


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaútlit lokaverkefnis.pdf1.29 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna