is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/15285

Titill: 
  • Ljós frá löngu liðnum tíma: Eggert Guðmundsson ljósmyndari og túlkun mynda hans í ljósi kenninga Barthes
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð er fjallað um ljósmyndarann Eggert Guðmundsson frá Söndum (1876 - 1905) og ljósmyndir hans skoðaðar frá ýmsum sjónarhornum, en kenningar fræðimannsins Roland Barthes um „studium“ og „punctum“ eru þó miðja rannsóknarinnar. Eggert bjó í Meðallandi, Vestur-Skaftafellssýslu og fór ungur að læra ljósmyndaiðn hjá Sigfúsi Eymundssyni í Reykjavík. Eftir hann liggja margar áhugaverðar myndir af mannlífi sveitarinnar sem var einangruð og torfær. Eggert fórst af slysförum í Kúðafljóti árið 1905, aðeins 29 ára gamall. Í fyrsta kafla er farið yfir stöðu þekkingar á fræðasviðinu og ýmsar kenningar og orðræða eru kynntar til sögunnar. Í öðrum kafla er síðan farið yfir lífsferil Eggerts en eftir hann liggja bæði ljósmyndirnar og svo sendibréf hans, sem varpa áhugaverðu ljósi á lífhlaup hans síðustu ár ævi hans. Reynt er að draga fram einkenni ljósmynda Eggerts og grafast fyrir um hverskonar heimildir þær eru og hvort þær geti varpað skýrari ljósi á höfund þeirra. Þá verður einnig skoðað hvaða áhrif þær geta haft á okkur nú, rúmlega 100 árum síðar.
    Niðurstaða rannsóknarinnar er sú að ljósmyndir Eggerts Guðmundssonar eru vissulega gagnlegar heimildir sem varpa ljósi á þjóðlíf og samtíma hans en á sama tíma geta þær staðið sjálfstæðar, líkt og listaverk. „Studium“ og „punctum“ haldast í hendur, því yfirleitt er hægt að fjalla um sömu mynd með bæði atriði í huga. Eggert sjálfur réðst sannarlega ekki á garðinn þar sem hann var lægstur með því að velja sér ljósmyndun að atvinnu á þessum tíma. Eftir hann standa þó myndir sem eru ómetanlegar heimildir um þjóðlíf og þjóðhætti í Vestur-Skaftafellssýslu sem geta vakið áhuga komandi kynslóða á mannlífi sem áður var.

Samþykkt: 
  • 29.5.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/15285


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BA E.G. FINAL edit 29.maí.pdf9.76 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna