Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/152
Árlega deyja um 500 Íslendingar af völdum hjarta- og æðasjúkdóma sem gerir þessa sjúkdóma að algengustu dánarorsök hér á landi. Meðal hinna fjölda sálrænna viðbragða sem komið geta í kjölfar kransæðastíflu er kvíði algengastur. Hjá kransæðasjúklingum virðist kvíði auka líkur á dauðsföllum. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna orsakir og einkenni kvíða hjá kransæðasjúklingum. Rannsóknir sýna að kvíði getur haft neikvæð áhrif á batahorfur og því mikilvægt að greina hann og meðhöndla í tíma.
Rannsóknarspurningin sem sett var fram var: Hvað orsakar kvíða hjá kransæðasjúklingum og hver eru helstu einkenni kvíðans?
Við gerð rannsóknarinnar var notað eigindlegt rannsóknarsnið samkvæmt fyrirbærafræðilegri rannsóknaraðferð Vancouver-skólans. Úrtakið samanstóð af fjórum einstaklingum sem greinst höfðu með kvíða á göngudeild kransæðasjúklinga með HADS kvíðaprófinu. Eitt viðtal var tekið við hvern meðrannsakenda, viðtölin tóku um hálfa til eina klukkustund.
Í niðurstöðunum voru greind þrjú þemu, þau voru: að þekkja sjálfan sig, lífið eftir kransæðastíflu og reynsla af heilbrigðisþjónustu. Niðurstöðurnar leiddu í ljós að orsakir kvíðans voru óþarfa áhyggjur af hverju sem væri og einkenni kvíða eru að miklu leyti líkamleg. Meðrannsakendur fundu allir fyrir kvíða í starfi meðan þeir voru úti á vinnumarkaðnum. Þeim fannst öllum gildi hreyfingar skipta mestu máli í bataferlinu. Almennt voru þeir sammála um að viðmót og þjónusta heilbrigðisstarfsfólks væri góð en þó komu fram góðar ábendingar um hvað mætti betur fara. Niðurstöður þessarar rannsóknar eru að mestu í samræmi við aðrar rannsóknir. Rannsakendur telja að niðurstöðurnar gefi mikilvæga innsýn inn í líðan kransæðasjúklinga sem er mikilvægur hluti af heildrænni hjúkrun.
Lykilorð: Kvíði, kransæðasjúkdómur, brjóstverkur, hjartaþræðing, Hospital Anxiety And Depression Scale (HADS) kvíðapróf.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
streitutypa.pdf | 933.86 kB | Takmarkaður | „Ég er svona streitutýpa.“ - heild | ||
streitutypa-e.pdf | 72.01 kB | Opinn | „Ég er svona streitutýpa.“ - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
streitutypa-h.pdf | 109.66 kB | Opinn | „Ég er svona streitutýpa.“ - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
streitutypa-u.pdf | 96.54 kB | Opinn | „Ég er svona streitutýpa.“ - útdráttur | Skoða/Opna |