Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/15352
Þessi rannsókn var ferlisathugun á öryggismálum sem fór fram í prentverksmiðju. Tilgangur hennar var að gera úttekt á stöðu öryggismála innan fyrirtækisins og meta þörfina á BBS-inngripi. Úttektin var gerð með NOSACQ-50 spurningalistanum þar sem þátttakendur taka afstöðu til atriða á fjögurra punkta Likert-skala. Listinn inniheldur 50 atriði sem skiptast niður á sjö þætti. Helstu niðurstöður voru þær að öryggismál virtust vera í góðum farvegi innan fyrirtækisins, en þó er hægt að gera betur á nokkrum stöðum. Til að mynda þarf að bæta samskipti sem snúa að öryggismálum, bæði á milli stjórnenda og starfsmanna og á milli starfsmannanna sjálfra. Einnig þarf að hafa starfsfólk meira með í ráðum þegar ákvarðanir eru teknar í öryggismálum og veita því betri þjálfun í öryggismálum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
31.05.13-pdf.pdf | 644.93 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |