is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/15356

Titill: 
  • Skilningur á atriðum íslenskrar útgáfu kvarða Marlowe og Crowne á félagslega æskilegri svörun
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Félagslegur æskileiki (social desirability) er hneigð fólks til þess að láta sjálft sig líta betur út í augum annarra í félagslegum samskiptum (Johnson, Fendrich og Hubbell, 2002). Félagslegur æskileiki skapar vanda þegar spurt er viðkvæmra spurninga í spurningakönnunum á þann hátt að hann hefur áhrif á réttmæti mælinga (Nederhof, 1985). Eitt helsta mælitækið á félagslegum æskileika er Marlowe-Crowne Social Desirability Scale (MCSD) sem hefur 33 atriði. Þetta verkefni er liður í þeirri vinnu að þróa réttmæta og áreiðanlega íslenska útgáfu af kvarða Marlowe og Crowne. Þátttakendur voru 17 alls, níu konur og átta karlar. Þeir voru á aldrinum 22 – 46 ára. Tekin voru viðtöl þar sem þátttakendur voru spurðir nákvæmlega út í túlkun á hverju atriði fyrir sig. Skilningur á atriðum Marlowe-Crowne kvarðans var nokkuð mismunandi á milli svarenda. Vandi tengdur þýðingu kom fram í 11 atriðum af 33. Mikilvægt er að skoða vel þær niðurstöður sem liggja fyrir með tilliti til þess að auka réttmæti kvarðans.

Samþykkt: 
  • 31.5.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/15356


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BS_erlakarlsdottir_31.05.13.pdf471.52 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna