is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/15365

Titill: 
  • Heildstæður stuðningur við jákvæða hegðun í skólum: Árangursmat með beinu áhorfi
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Þessari langtímarannsókn var ætlað að meta árangur heildstæðs stuðnings við jákvæða hegðun í skóla (schoolwide positive behavior support; SW-PBS) með beinu áhorfi. SW-PBS er raunprófað og heildstætt agastjórnunarkerfi sem byggir á lögmálum náms og hegðunar. Markmið kerfisins er að veita starfsmönnum verkfæri til að breyta hegðun allra nemenda úr óæskilegri yfir í æskilega hegðun. Gagnasöfnun fór að jafnaði fram einu sinni á skólaönn í 15 samfellda skóladaga frá vori 2008 fram að vori 2013, alls tíu sinnum. Til að meta árangur SW-PBS var notað beint áhorf með hlutabilsskráningu (partial interval recording). Margliða grunnskeiðssnið yfir skóla (multiple baseline design across schools) var notað til að meta áhrif SW-PBS á hegðun starfsfólks og nemenda. Niðurstöður benda til að innleiðing SW-PBS hafi haft tilætluð áhrif á margar fylgibreytur, en meiri stuðning þarf við starfsmenn skólans til að taka á því sem var óbreytt. Hlutfall áhorfsbila sem mældu jákvæða athygli starfsmanna jókst á mælingatímabilinu á öllum svæðum skólans og öllum aldursstigum nemenda. Það dró úr óæskilegri hegðun nemenda á elsta stigi á öllum svæðum og í kennslustundum á yngsta stigi. Hlutfall áhorfsbila þar sem starfsfólk brást við óæskilegri hegðun nemenda jókst þó ekki mikið. Hlutfall óæskilegrar hegðunar jókst því miður á miðstigi og á almennum svæðum á yngsta stigi. Að lokum er rætt um stöðu innleiðingar á SW-PBS í skólunum og tillögur til að bæta meðferðartryggð við SW-PBS.

Styrktaraðili: 
  • Fræðsluskrifstofa Reykjanesbæjar styrkti verkefnið vorið 2012 og Rannsóknarsjóður Háskóla Íslands styrkti verkefnið vorið 2013.
Samþykkt: 
  • 3.6.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/15365


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
SWPBS_MSritgerd_HelgaJStefansdottir_2013.pdf9.06 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna