is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/15399

Titill: 
  • Viðhorf skjólstæðinga Fjölskylduráðgjafar Heilsugæslunnar á Akureyri til þjónustunnar sem þar er í boði
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Markmið þessarar rannsóknar var að kanna viðhorf skjólstæðinga Fjölskylduráðgjafar Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri (HAK) til þjónustunnar sem þar er í boði. Með því var hægt að fá haldbærar upplýsingar um hvernig þjónustan reynist skjólstæðingum og hvort einhverja þætti þjónustunnar mætti bæta. Rannsóknin var unnin í samstarfi við Fjölskylduráðgjöf HAK. Þátttakendur voru einstaklingar sem höfðu sótt þjónustu til Fjölskylduráðgjafarinnar á árunum 2010-2012. Starfsfólk HAK hafði samband við einstaklingana og samþykktu alls 416 að fá sendan spurningalista í gegnum tölvupóst. Af þeim voru 250 þátttakendur þegar upp var staðið. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að 76% (n = 190) þátttakenda voru mjög eða frekar ánægðir með þá þjónustu og ráðgjöf sem þeir fengu. Konur voru þó ánægðari þegar á heildina er litið heldur en karlar. Hlutfall kvenna sem taldi þjónustuna mjög góða var 46,8% (n = 80) en hlutfall karla var öllu lægra eða 34,8% (n = 23). Það sem þátttakendur töldu að helst mætti bæta var biðtími eftir þjónustu og fjölgun starfsfólks svo unnt væri að veita sem besta þjónustu. Rannsóknir af þessum toga eru mikilvægar því þær eru þáttur í að hægt sé að efla grunnþjónustu samfélaga. Með því er hægt að stuðla að betri heilsu einstaklinga, hvort sem um er að ræða andlega eða líkamlega. Þannig aukast líkur á að hægt sé að leysa úr vandamálum einstaklinga áður en þau verða alvarlegri og krefjast kostnaðarsamari úrræða. Þegar upp er staðið hlýst samfélagslegur hagnaður af því að bjóða upp á sterka grunnþjónustu.

  • Útdráttur er á ensku

    The aim of this study was to examine the attitudes of clients towards the services offered by the Department of Family Counselling at the Healthcare Center in Akureyri, north Iceland. The results give an appraisal of the services on offer and indicate whether these services could be improved. The study was conducted in collaboration with the Healthcare Centre in Akureyri. The participants were all users of the services offered by the Family Counselling department between 2010-2012. They had been contacted by personnel at the Healthcare Center and 250 individuals completed the survey of the 416 who had agreed to receive the questionnaire via email. The main findings of the survey were that 76% (n = 190 individuals) of participants were either satisfied or very satisfied with the services offered, with women often more satisfied than men. The proportion of women who thought the service was very good was 46.8% (n = 80) but the rate for men was lower, 34.8% (n = 23). Participants thought that waiting times for services could be reduced and that more staff were needed to make the service as good as possible. Research of this type can only lead to enhanced healthcare within communities and to the improved mental and physical well-being of individual clients. The research will also help to identify problems for the individual before they become serious and require costly treatment. Ultimately, the ability to offer improved healthcare will reduce overall costs and benefit the community at large.

Samþykkt: 
  • 3.6.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/15399


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
linda_asta_BA_lokaeintak_30.04.pdf951.74 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna