Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1548
Í ritgerðinni er fjallað um niðurstöður rannsóknar sem gerð var á samræmdu prófi í stærðfræði 2007, en rannsóknin var gerð árið 2008. Rannsóknin fólst í að greina prófið eftir fyrirfram ákveðinni forskrift. Einnig var tekið viðtal við aðalhöfund samræmda prófsins 2007 og þessar upplýsingar nýttar til að bera saman prófið og tengsl þess við Aðalnámskrá grunnskóla 1999. Þá fékk ég álit eins kennara og þriggja nemenda um tilgang samræmdra prófa og fleira. Réttmæti og áreiðanleiki koma við sögu þar sem þessi tvö mikilvægu hugtök tengjast óneitanlega mikið prófagerð. Að lokum er rætt um tilgang samræmdra prófa í stærðfræði og hvort þau fylgi stefnum og straumum í menntamálum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
lokaskil.pdf | 313.69 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |