is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/15750

Titill: 
  • Áhrif fyrirkomulags gengismála á ferðaþjónustu á Íslandi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Markið þessarar ritgerðar er að fjalla um og varpa nánara ljósi á það hvaða áhrif fyrirkomulag gengismála ásamt gengissveiflum hafa á ferðaþjónustuiðnaðinn á Íslandi. Reynt verður að komast að því hvort samband sé fyrir hendi á milli raungengis og fjölda þeirra erlendra ferðamanna sem til landsins koma og hvort raungengið hafi áhrif á þá fjárupphæð sem þeir eyða í ferð sinni hér á landi.
    Einnig verður skoðað hvernig áhrif gengisbreytinga geta orskað það að erlendir ferðamenn vilji frekar eða síður ferðast til Íslands. En eftir að íslenska krónan veiktist í kjölfar efnahagshrunsins árið 2008 hefur ferðamönnum fjölgað ört ár frá ári og á hverju ári hefur verið sett met í fjölda þeirra erlendu ferðamanna sem koma og heimsækja Ísland.
    Með þessar upplýsingar að leiðarljósi liggur beinast við að sú spurning vakni hvort samband sé þarna á milli, þ.e.a.s. á milli breytinga á raungengi og komu ferðamanna til landsins. Í þessu verkefni verður þeirri spurningu svarað ásamt því að skoðað verður hvaða áhrif fyrirkomulag gengismála hefur á ferðaþjónustuna á Íslandi.
    Niðurstöðurnar úr þessu verkefni gáfu til kynna að vissulega hafi raungengi áhrif á fjölda ferðamanna sem hingað til lands koma, samband sé til staðar en það er þó viðkvæmt.
    Einnig fengust þær niðurstöður að fyrirkomulag gengismála hafi áhrif á fjölda þeirra ferðamanna sem hingað til lands koma en það sem kom einna helst á óvart er að fyrirkomulag gengismála hefur meiri áhrif á þá upphæð sem hver ferðamaður eyðir í Íslandsferð sinni heldur en fjölda þeirra gesta sem hingað koma.
    Lykilorð: Gjaldmiðill, gengi, gengissveiflur, ferðaþjónusta, gjaldeyristekjur.

  • Útdráttur er á ensku

    The main purpose of this paper is to examine what, if any the
    connections is between the real exchange rate and the tourism industry in Iceland. Attempts will be made to determine whether this connection exists and if it does, how it affects the Icelandic tourism and the people coming here to visit. Then the amount of money each tourist spends in their trip will be looked into to see if it has taken any change over the last years.
    The results of this paper show that more and more people are coming to visit Iceland, but the people coming are now people with less money so the amount they spent here is gettinger lower. As in the number of tourists coming to visit is higher but the number each and one of them spends here is getting lower.
    Keywords: Currency, currency rate, currency rate fluctuations,
    tourism industry, foreign currency income.

Samþykkt: 
  • 14.6.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/15750


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BS vol. Final .pdf1.14 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna