is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/15842

Titill: 
  • Hvernig farnast ættleiddum börnum erlendis frá á Íslandi?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Markmið rannsóknarinnar var fyrst og fremst að auka skilning á almennri líðan ættleiddra barna á Íslandi og aðstæðum þeirra. Auk þess var vonast til þess að hún gæti gefið upplýsingar um hvort þau og kjörforeldrar þeirra fengju viðeigandi þjónustu. Foreldrar 33 drengja og 76 stúlkna svöruðu spurningalista sem þeir fengu sendan og voru það um 40% af úrtakinu. Niðurstöðurnar voru að mestu í samræmi við niðurstöður erlendra rannsókna á ættleiddum börnum og sýndu að á heildina litið farnast þeim vel. Eins og búist var við var tíðni einhverfueinkenna og einkenna athyglisbrests og ofvirkni hærri en hjá íslenskum börnum almennt. Það sem helst kom á óvart var að erfiðleikar við tengslamyndun virtust vera sjaldgæfir og að kynþroski virtist hefjast á sama tíma og hjá íslenskum börnum ólíkt því sem erlendar rannsóknir hafa bent til. Þar sem innan við helmingur foreldra hafði svarað þegar unnið var úr niðurstöðum rannsóknarinnar væri áhugavert að kanna hvort breyting verður á þeim ef fleiri svör berast.

Samþykkt: 
  • 25.6.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/15842


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BA ritgerð - Ættleidd börn á Íslandi.pdf693.77 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna