Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/15876
Uppfræðsla og þekkingarmiðlun eru almannagæði sé þeim ekki miðlað til fleiri en svo að kraðakskostnaður geri vart við sig. Útgjöld rekstraraðila á hvern nemanda vegna rekstrar skóla lækka eftir því sem fleiri nemendur eru viðstaddir hverja kennsluathöfn en sé farið yfir ákveðin mörk í þeim efnum getur kraðakskostnaður orðið ávinningi nemenda yfirsterkari. Skólastofnanir leitast við að lágmarka rekstrarkostnað en þurfa þó að koma í veg fyrir að kraðakskostnaður verði svo mikill að orðstír þeirra bíði hnekki. Í greininni er rakið hvernig skólastofnanir á mismunandi skólastigum geta leyst þennan vanda.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Kostnaður-við-þekkingarmiðlun.pdf | 289.19 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |