Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/15894
Áhrif sköpunar í tómstundastarfi unglinga hefur lítið sem ekkert verið kannað hér á landi. Leiklist sem sköpunarform getur veitt ungu fólki gríðarlegt tækifæri til náms og þroska hvort heldur sem er andlegan sem og félagslegan. Í þessari ritgerð er gert grein fyrir þeirri rannsókn sem höfundur vann að, við athugun á upplifun unglinga í leiklist í tómstundastarfi með áherslu á virka þátttöku og jákvæðan þroska. Farið verður yfir þær helstu kenningar félagsmótunar sem höfundur taldi nauðsynlegar þegar unnið er með unglinga í hópastarfi og röksemdir færðar fyrir notkunargildi þeirra. Niðurstöður rannsóknarinnar, sem framkvæmd var með eigindlegum rannsóknaraðferðum í formi viðtala sýna fram á þá gríðarlegu þörf ungmenna til virkrar þátttöku í skapandi starfi í félagsmiðstöðvum og þann ávinning sem unglingarnir telja fulla virka þátttöku hafa í för með sér. Þátttakendur telja ávinning sköpunar og virkrar þátttöku vera mjög mikinn sem vonandi hvetur fólk til að skoða þann þátt tómstundastarfs enn frekar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni.pdf | 637.92 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |