Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1589
Barnabækur eru krydd í tilveruna og mikilvægar okkur öllum. Þær tengjast fortíðinni, nútíðinni og framtíðinni og eru skrifaðar fyrir börnin okkar.
Í þessari greinargerð mun ég fjalla almennt um barnabókmenntir, bókina mína, Á milli tveggja heima, og kennsluverkefni sem hægt er að nýta með bókinni.
Bókin fjallar um litla álfastelpu og fjölskyldu hennar. Álfastelpan myndar tengsl við litla stúlku úr mannheimi sem leiðir til vináttu. Myndirnar í bókinni teiknaði dóttir mín og þær gera söguna lifandi og skemmtilegri.
Það er hægt að vinna alls konar verkefni með sögu sem þessa. Ég bjó til kennsluverkefni sem hentar 9 ára börnum. Kennsluverkefnið er margbreytilegt og tengist þáttum aðalnámskrár grunnskóla og vináttu sem er stór og mikilvægur tilfinningaþáttur í lífi skólabarna.
Að mínu mati hefur sagan mín að geyma boðskap sem er heilnæmur og á heima í heimi vandaðra íslenskra barnabókmennta.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Gudny_Lokaverkefni fors12jun.pdf | 51.37 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna | |
Gudny_Greinargerd12 jun.pdf | 190.32 kB | Opinn | Greinargerð og kennsluverkefni | Skoða/Opna |