is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Rafræn tímarit > Stjórnmál og stjórnsýsla >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/15938

Titill: 
  • Jöfnuður á Íslandi 1991-2007
Útgáfa: 
  • Desember 2012
Útdráttur: 
  • Stefán Ólafsson og Arnaldur Sölvi Kristjánsson telja sig hafa hrakið fjórar kenningar mínar eða tilgátur, sem settar voru fram 2007 með tilvísun til gagna frá 2004, að jöfnuður hefði frekar aukist en minnkað á Íslandi 1995–2004, að tekjuskipting hefði á því tímabili orðið eitthvað ójafnari, en væri samt í lok þess ein hin jafnasta í heimi, að rangt væri, að tekjuskipting hafði þá færst verulega frá því, sem tíðkaðist á Norðurlöndum, og að skattabreytingar 1991–2007 hefðu ekki aukið óréttlæti eða ójöfnuð, þótt dregið hefði úr jöfnunaráhrifum skattlagningarinnar. Hér leiði ég rök að því, að þeir hafi síður en svo hrakið þessar kenningar mínar eða tilgátur. Þeir hafa ekki gætt að því, við hvaða tímabil ég miðaði, og misskilið, hvernig ég notaði hugtök eins og óréttlæti, ójöfnuð og jöfnun. Til dæmis þarf ójöfn tekjuskipting ekki að vera óréttlát, jafnframt því sem sumir telja skattlagningu í jöfnunarskyni óeðlilega. Einnig bendi ég á, að þeir Stefán og Arnaldur Sölvi viðurkenna, að tekjuskipting hér hafi árið 2004 ekki verið ójafnari en annars staðar á Norðurlöndum, sem var ein meginniðurstaða mín. Loks reyni ég að skýra, hvar okkur greini á, en það sé aðallega um það, hvort áhyggjuefnið eigi að vera hinir ríku eða hinir fátæku.

Birtist í: 
  • Stjórnmál og stjórnsýsla, 2012, 8 (2), bls. 571-578
ISSN: 
  • 1670-679X
Athugasemdir: 
  • Almenn grein
Tengd vefslóð: 
Samþykkt: 
  • 2.7.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/15938


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
b.2012.8.2.2.pdf141.35 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna