Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16003
Markmið rannsóknarinnar var að fá fram skoðanir unglinga á starfsemi félagsmiðstöðva. Könnun var lögð fyrir unglinga í 8., 9. og 10. bekk í einum grunnskóla úti á landi. Með könnuninni vildi rannsakandi fá að vita hvaða hugmyndir unglingarnir hafa um félagsmiðstöðvar og starfsemi þeirra, hvort unglingarnir telja
sig hafa lært eitthvað af þátttöku sinni í starfinu og hvort þeir þekkja markmið og tilgang félagsmiðstöðva. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að unglingarnir líta á félagsmiðstöðina sem þeirra eigið athvarf, þar sem þeir hafa gott aðgengi að vinum sínum og jafningjum. Fáir unglingar telja sig læra eitthvað af
þátttöku í starfinu en nokkrir mikilvægir þættir komu þó í ljós og má þar nefna ýmsa persónulega og félagslega færni. Niðurstöður sýna einnig að unglingarnir hafi takmarkaða þekkingu á markmiðum og tilgangi félagsmiðstöðva. Í ritgerðinni er fjallað um hugtakið tómstundir, unglingsárin, félagsmiðstöðvar, frítímann og
menntun og þátttöku. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa öllum þeim sem koma að félagsmiðstöðvarstarfi innsýn í hugmyndir unglinga um starfsemina.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ritgerðin.pdf | 665.57 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |