Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16016
Foreldrar ungmenna í framhaldsskólum, sem og aðrir foreldrar, bera mikla ábyrgð á börnum sínum. Ef foreldrar eru virkir í lífi barna sinna, fylgjast með námi þeirra og hvetja þau áfram líður þeim ungmennum betur en þeim sem hafa lítinn eða engan stuðning. Foreldraráð í framhaldsskólum voru bundin í lög árið 2008 og eiga foreldrar ungmenna í skólunum þar sæti. Hlutverk foreldraráðs er að styðja við skólastarfið og huga að málum sem snerta hagsmuni nemenda. Hlutverk áfengis- og vímuefnaforvarna er sífellt að aukast í framhaldsskólum en könnun á upplýsingum á heimasíðum fimm framhaldsskóla leiddi í ljós að áfengis- og vímuefnaforvarnarstefna er ekki nægilega skýr og hnitmiðuð í öllum skólum. Hlutverk foreldra í framhaldsskólum er þó orðið stærra með lögum um foreldraráð frá árinu 2008.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA ritgerð rétt--pdf.pdf | 618.91 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |