Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16048
Í ritgerðinni „Einu sinni var ...“ er reynt að greina þá öræfameðferð sem birtist í aðferðafræði, vinnuaðferðum og reynslu Hálendishópsins í ferðum um Strandir með unglinga í sál-félagslegum vanda. Á árunum 1989 – 2007 meðan úrræðið var starfrækt var farið með 22 hópa eða hátt í 200 unglinga í þessar gönguferðir um Strandir með bakpoka.
Jafnframt er þessi úttekt eða greining borin saman við lýsingar á öræfameðferð eins og þær birtast í enskum fræðaskrifum, sérstaklega þeim sem orðið hafa til vegna áhrifa frá Kurt Hahn og Outward Bound skólanna, sem voru stofnaðir í anda hans hugmyndafræði. Áhrifa Kurts Hahn og Outward Bound skólanna gætir alls staðar í reynslunámi, útinámi, ævintýranámi og öræfameðferð í samtímanum, og hefur gert allt frá fyrri hluta 20. aldar þegar Hahn fer að þróa menntunarhugmyndir sínar.
Þessi ritgerð er ekki byggð á rannsókn á einni tiltekinni ferð hálendishópsins sem slíkri, heldur má fremur segja að það sem hér er skrifað um Hálendishópinn sé nokkurs konar starfendarannsókn sem byggir á margra ára reynslu eins manns, með öðrum orðum mín, Björns Vilhjálmssonar. Hér er um að ræða reynslu og ígrundun sem byggir á 16 ferðum hópsins, sem farnar voru á 13 ára tímabili, frá árinu 1989-2001 og umsjón með verkefninu til ársins 2005.
Frá árinu 2002 og til ársins 2007 hélt Hálendishópurinn áfram að fara árlega með unglingahópa á Strandir, en á þessum árum var enginn okkar frumkvöðlanna eftir í hópstjórahópnum. Og eftir efnahagshrunið á Íslandi hefur Hálendishópurinn ekki starfað, þrátt fyrir einlægan áhuga og vilja þeirra hópstjóra sem störfuðu í honum undir lokin.
Í ritgerðinni „Einu sinni var ...“ er reynt að greina þá öræfameðferð sem
birtist í aðferðafræði, vinnuaðferðum og reynslu Hálendishópsins í ferðum
um Strandir með unglinga í sál-félagslegum vanda. Á árunum 1989 – 2007
meðan úrræðið var starfrækt var farið með 22 hópa eða hátt í 200 unglinga
í þessar gönguferðir um Strandir með bakpoka.
Jafnframt er þessi úttekt eða greining borin saman við lýsingar á
öræfameðferð eins og þær birtast í enskum fræðaskrifum, sérstaklega þeim
sem orðið hafa til vegna áhrifa frá Kurt Hahn og Outward Bound skólanna,
sem voru stofnaðir í anda hans hugmyndafræði. Áhrifa Kurts Hahn og
Outward Bound skólanna gætir alls staðar í reynslunámi, útinámi,
ævintýranámi og öræfameðferð í samtímanum, og hefur gert allt frá fyrri
hluta 20. aldar þegar Hahn fer að þróa menntunarhugmyndir sínar.
Þessi ritgerð er ekki byggð á rannsókn á einni tiltekinni ferð
hálendishópsins sem slíkri, heldur má fremur segja að það sem hér er
skrifað um Hálendishópinn sé nokkurs konar starfendarannsókn sem byggir
á margra ára reynslu eins manns, með öðrum orðum mín, Björns
Vilhjálmssonar. Hér er um að ræða reynslu og ígrundun sem byggir á 16
ferðum hópsins, sem farnar voru á 13 ára tímabili, frá árinu 1989-2001 og
umsjón með verkefninu til ársins 2005.
Frá árinu 2002 og til ársins 2007 hélt Hálendishópurinn áfram að fara
árlega með unglingahópa á Strandir, en á þessum árum var enginn okkar
frumkvöðlanna eftir í hópstjórahópnum. Og eftir efnahagshrunið á Íslandi
hefur Hálendishópurinn ekki starfað, þrátt fyrir einlægan áhuga og vilja
þeirra hópstjóra sem störfuðu í honum undir lokin.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Meistarprófsritgerð Björn Vilhjálmsson.pdf | 3.12 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |