Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16059
Í rannsókn þessari er sjónum beint að samvinnunámi. Meginviðfangsefni rannsóknarinnar felst í því að skoða samvinnunám sem kennsluaðferð; hvernig samvinnunámi er beitt í kennslu og hvert viðhorf kennara sem beita samvinnunámi er til kennsluaðferðarinnar. Samvinnunám er kennsluaðferð sem byggist á því að nemendur vinna saman í litlum hópum að sameiginlegum markmiðum. Markmiðið með því að skoða þessa tilteknu kennsluaðferð er að dýpka þekkingu mína á aðferðinni. Með aukinni þekkingu á fræðilegum bakgrunni samvinnunáms og þjálfun í að beita aðferðinni við kennslu get ég svo notað aðferðina í starfi mínu sem kennari. Rannsóknin var unnin frá haustmisseri 2012 og fram á vormisseri 2013. Eigindlegum aðferðum var beitt við rannsóknina en slíkar aðferðir felast í því að rannsakandinn notar skynfæri sín, augu og eyru til að skapa merkingu og mynda sér skoðun á ákveðnu fyrirbæri. Til að auka sem mest við þekkingu mína á samvinnunámi tók ég viðtöl við kennara sem hafa reynslu af samvinnunámi og gerði athuganir á vettvangi þar sem ég fékk að fylgjast með kennslu þátttakenda minna.
Helstu niðurstöður mínar eru þær að almenn upplifun þátttakenda af samvinnunámi er mjög jákvæð. Þeir töldu samkvæmni kennarans þegar kemur að reglum, skipulagi og undirbúningi vera lykilatriði varðandi framkvæmd samvinnunáms. Þátttakendur lögðu áherslu á fjölbreytt námsmat samhliða samvinnunámi og töldu mjög mikilvægt að nemendur væru meðvitaðir um hvaða þættir væru metnir hverju sinni. Þeir töldu samvinnunám hafa náms- og félagslegan ávinning fyrir nemendur þar sem nemendur kynnast vel innbyrðis í gegnum samvinnunám og læra meira um þau viðfangsefni sem liggja fyrir í gegnum samræður og samvinnu.
The main focus of this research is on cooperative learning. The purpose of
this study is to explore cooperative learning as a teaching method both in
theory and practise, also to see what view teachers who use cooperative
learning in their classrooms have on it. Cooperative learning is based on
students working together in small groups to reach common goals. The main
purpose for exploring cooperative learning was to increase my knowledge of
this particular teaching method so that I will be more capable of using it with
my students and in my classroom when I become a teacher. The research
which was qualitative, was conducted from August 2012 through April 2013.
In qualitative research the researcher uses his senses, eyes and ears to create
meaning from and form an oppinion on a certain phenomenon based on
what he sees or hears. To get the best opportunity to survey cooperative
learning I interviewed teachers who have experienced cooperative learning
with their students and did field reseach where I observed my participants
cooperative teching methods in their classrooms.
The results indicated that the general experience these teachers had
from cooperative learning was very positive. They‘re opinion was that the
teachers stability concerning rules, preperation and planning before class
were key factors for the use of cooperative learning. The participants
emphasised the importance of varied assessment and that their students
were aware of the educational elements which were being assessed at each
time. They believe that cooperative learning has positive influence on
students‘ social and educational achievement, which appears through
students getting to know each other better and learning more through
conversation and cooperation.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Erna Jóhannesdóttir - meistaraverkefni.pdf | 1.04 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |