is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1605

Titill: 
  • Um vændi : mismunandi leiðir til löggjafar
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð verða skoðuð ýmis atriði vændislöggjafa. Í fyrsta lagi verða skoðaðar
    skilgreiningar á vændi, bæði almennar og lagalegar sem og nokkrar leiðir sem hugsanlegar
    eru á lagalegri meðferð vændis. Skoðaðar verða þær leiðir að banna vændi með lögum, að
    banna vændi með samfélagslegum viðurlögum, að takmarka bann við vændi, að stjórna vændi
    og að afnema allar hömlur á vændi úr lögum. Því næst verður litið á vændislöggjöf Svíþjóðar
    og sérstaklega á hina „sænsku leið“ sem bannar kaup á vændi. Þá verða athugaðar ástæður
    þess af hverju sú leið var ekki farin á Íslandi þegar kynferðisbrotakafla almennu
    hegningarlaganna var breytt árið 2007. Næst er farið til Ástralíu og skoðaðir þeir lagabókstafir
    sem þar gilda um vændi. Þar hefur víða verið farin sú leið að lögleiða vændi að skilyrtum
    ströngum reglugerðum en sú aðferð hefur þó sætt gagnrýni sem litið verður á. Þá verður
    vændislöggjöf á Íslandi skoðuð og þá einna helst sú breyting sem gerð var á lögunum árið
    2007 þegar afnumin var refsing fyrir sölu vændis. Þá verður drepið á ákvæðum
    alþjóðasamninga sem fjalla um vændi og sem Ísland er aðili að og ýmissri annarri starfsemi á
    alþjóðavettvangi sem miðar að því að sporna gegn hagnýtingu á kynferðisþjónustu og mansali
    til vændis. Þá verður fjallað í stuttu máli um hvaða dómar gengið hafa á Íslandi um vændi.
    Að lokum verður hugleitt hvaða breytinga er einna helst þörf í íslenskri vændislöggjöf.
    Viðauki fylgir ritgerðinni sem er stutt yfirlit sögu vændis allt frá hórunni í Babylóníu til
    vændis okkar daga.

Samþykkt: 
  • 9.7.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1605


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
ba-ritgerd.pdf227.02 kBOpinn"UM VÆNDI - MISMUNANDI LEIÐIR TIL LÖGGJAFAR"-heildPDFSkoða/Opna