is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16066

Titill: 
  • Skapandi stærðfræði : námskeið fyrir kennara um sköpun og skapandi stærðfræðinám
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Í þessari meistararitgerð er sagt frá námskeiði um sköpun og skapandi stærðfræðinám. Námskeið var haldið og rannsakað sem hönnunarrannsókn. Í rannsókninni var leitað svara við spurningum um það hvernig hanna og þróa megi námskeið fyrir kennara um skapandi stærðfræði, hvernig slíkt námskeið geti farið fram og hvernig það nýtist kennurum til þess að styðja nemendur sína í því að vera skapandi í stærðfræðinámi. Námskeiðið sóttu tuttugu grunnskólakennarar af yngsta stigi, miðstigi og unglingastigi. Þar var fjallað um rannsóknir og skilgreiningar á sköpun, sköpun í stærðfræði og skapandi stærðfræðinám. Kynntar voru leiðir til þess að ýta undir sköpun í stærðfræðinámi og rætt um leiðsagnarmat sem leið til þess að leggja mat á sköpun í stærðfræðinámi. Kennararnir sem sóttu námskeiðið voru virkir þátttakendur í uppbyggingu þess, ræddu um efnið og leystu verkefni. Rannsóknin á námskeiðinu byggði á fjölbreyttum gögnum. Skoðað var hvernig námskeiðið fór fram og lagt mat á það. Sérstök áhersla var lögð á að skoða hvernig kennurunum fannst námskeiðið nýtast sér í kennslunni. Helstu niðurstöður voru að námskeið um skapandi stærðfræði getur eflt kennara í því að vinna á skapandi hátt í stærðfræðikennslunni hjá sér. Í ljós kom að umræðuhópar studdu við fagmennsku og starfsþróun kennaranna. Á námskeiðinu kom einnig fram að með því að stefna að sköpun í stærðfræðinámi eflast aðrir grunnþættir menntunar eins og læsi, lýðræði og jafnrétti.

  • Útdráttur er á ensku

    This master's thesis is about a course on creativity and creative mathematics. A course was held and researched as a design experiment. In the research answers were sought to questions about how to design and develop a course on creative mathematics for teachers, how such a course can proceed and how it supports teachers in motivating their students to be creative in mathematics at school. The course was attended by twenty elementary and secondary teachers in Iceland. It focused on research and definitions of creativity, creativity in mathematics and creative mathematics education. Ways to support creativity in mathematics educations were presented and formative assessment introduced as a way to evaluate creativity in mathematics. The teachers were active participants in the construction of the course, took part in discussions and assignments. The research was composed from varied data. The course was examined and evaluated. Special focus was on how the teachers thought it supported their teaching. Main results were that a course on creative mathematics can strengthen teachers in efforts to be creative in their mathematics education. Discussion groups gave teachers tools for professional development. The course showed that working towards creativity in mathematics education can enhance other elements of education like literacy, democracy and equality.

Samþykkt: 
  • 23.7.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/16066


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Skapandi-staerdfraedi-Namskeid-fyrir-kennara.pdf3.98 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna