is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Rafræn tímarit > Stjórnmál og stjórnsýsla >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16070

Titill: 
  • Gefa viðbrögð við eldgosi innsýn í krísustjórnun: Dæmi frá Icelandair
  • Titill er á ensku Do reactions to volcanic eruptions give insight into crisis management: An example from Icelandair
Útgáfa: 
  • Júní 2013
Útdráttur: 
  • Eldgosið í Eyjafjallajökli árið 2010 hafði víðtæk áhrif á íslenskt samfélag, ekki síst á flugsamgöngur vegna öskuskýsins sem myndaðist við það. Truflanir á flugi teygðu anga sína um stóran hluta Evrópu þannig að flugleiðir lokuðust og farþegar komust ekki leiðar sinnar. Icelandair fór ekki varhluta af ástandinu og stóð frammi fyrir miklum erfiðleikum við að halda uppi þjónustu við farþega sína. Viðfangsefni þessarar greinar er að skoða hvort og hvernig raundæmi frá Icelandair, þar sem viðbrögð félagsins eru rakin þegar truflanir vegna gossins voru mestar, gefi innsýn í krísustjórnun. Um könnunarrannsókn er að ræða og tilgangurinn er að átta sig á ýmsum breytum og áhrifaþáttum krísustjórnunar og draga fram áhugaverðar spurningar til frekari skoðunar. Gerð er grein fyrir hugtökunum krísa og krísustjórnun, atburðarás og viðbrögð Icelandair eru rakin, og niðurstöður dregnar saman í svörum við rannsóknarspurningunum sem lagðar eru fram. Helstu niðurstöður eru í fyrsta lagi að skilgreina má ástandið sem skapaðist hjá Icelandair í kjölfar gossins sem krísuástand. Í öðru lagi að krísuteymi, upplýsingamiðlun og samstarf við hagsmunaaðila hafi verið veigamiklir þættir í viðbrögðum félagsins. Í þriðja lagi að viðbrögð Icelandair hafi vegna sérstöðu krísunnar verið byggð á reynslu og þekkingu félagsins og að framvinda athafna hafi verið um margt sjálfsprottin.

  • Útdráttur er á ensku

    The 2010 volcanic eruption in Eyjafjallajökull had an extensive impact on the Icelandic society, especially on air traffic due to the volcanic ash cloud which emerged. Flight disturbance also occurred in large parts of Europe, causing air routes to close down, hindering passengers to proceed with their travelling. Icelandair, Iceland´s largest airline company, was hugely affected by this extreme situation, which made the continuing of operations a great challenge. The subject of this article is to investigate whether and how a case study on Icelandair´s reactions, during the peak of disturbance on operations, can give an insight into crisis management. The research is explorative with the purpose of understanding various variables and influencing factors on crisis management and to bring out interesting questions for future investigations. In the article the concepts of crisis and crisis management are defined, the course of events and Icelandair´s reactions are expounded, and results and conclusions are summarized in answers to the research questions. The main conclusions are; first that the situation that occurred in Icelandair because of the volcanic eruption can be defined as a crisis. Second, that a crisis committee, information and co-operation with stakeholders were important factors in the company´s reaction. Third, that due to the particular type of crisis in question, based on the experience and knowledge within the company, Icelandair´s reactions unfolded as emergent activities.

Birtist í: 
  • Stjórnmál og stjórnsýsla, 2013, 9 (1), bls. 211-236
ISSN: 
  • 1670-679X
Athugasemdir: 
  • Fræðigrein
Samþykkt: 
  • 23.7.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/16070


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
a.2013.9.1.11.pdf835.93 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna