Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16088
Þetta verkefni fjallar um raforkuna í verksmiðju Actavis ehf. Fyrst er farið yfir sögu fyrirtækisins í grófum dráttum frá stofnun forvera þess til dagsins í dag. Kynnt er hvernig upplýsingum er safnað um raforkunotkun og gæði. Þá er dregin upp mynd af skiptingu raforkunnar eftir notkun. Gerð er úttekt á raforkunotkun þrýstiloftsveitunnar í verksmiðjunni fyrir og eftir breytingar sem gerðar voru til að auka orkunýtni. Að lokum eru gæði raforkunnar skoðuð og borin saman við staðla um raforkugæði ásamt því að skoða og útskýra sum fyrirbæri sem hafa áhrif á gæði raforkunnar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Tryggvis11RaforkaActavis2013.pdf | 3.54 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |