Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16105
Það er ekki á hverjum degi sem ákvörðun er tekin um að fara í stórframkvæmdir hér á landi. Ákvörðun hefur þó verið tekin um að fara í byggingu á nýjum Landspítala við Hringbraut. Sagan segir okkur það að verkefni hér á landi fari oft á tíðum framúr kostnaðar- og tímaáætlunum, því er mikilvægt að vel sé staðið að stórframkvæmd sem þessari.
Í þessari rannsókn var skoðað hvernig staðið var að undirbúningi Nýja Landspítalans samanborið við lágmarkskröfur (QA) sem eru notaðar í Noregi. En Noregur er eitt af þeim löndum sem Ísland vill bera sig við. Rannsóknin er eigindleg sem þýðir að skoðaðar voru aðferðir sem notaðar voru og lagt mat á hversu góðar þær eru. Skoðaðar voru átta skýrslur sem skrifaðar hafa verið um og fyrir Nýja Landspítalann, var þeim skipt upp í tvo flokka, þ.e skýrslur sem falla undir ábyrgð ráðuneyta og ábyrgð ráðgjafa.
Rannsóknin leiddi það í ljós að mismunur er á því hvernig staðið var að undirbúningi Nýja Landspítalans miðað við aðferðir Norðmanna. Má þar helst nefna aðkomu utanaðkomandi ráðgjafa að verkefninu. En mun meiri áhersla er lögð á innkomu þeirra í Noregi en hér á landi. Hér er því tækifæri fyrir íslenska ríkið að gera betur
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Quality Assurance loka - Anna María.pdf | 1.18 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |