Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1611
Þessi ritgerð byggir á rannsóknarvinnu sem unnin er með það að markmiði að öðlast þekkingu á starfi frjálsra félagasamtaka er vinna að þróunarverkefnum með þróunarsamvinnu. Horft er til sögu þróunar til að leita skilgreininga á frjálsum félagasamtökum og sú þekking nýtt til þess að skilgreina starf þeirra, hlutverk, vankanta og árangur. Megin rannsóknarþema ritgerðarinnar er hvernig frjálsum félagasamtökum reiðir af í samstarfi við opinberar stofnanir en slíkt samstarf verður æ algengara samhliða breyttum áherslum í þróunarsamvinnu. Til að skoða það til hlítar er samstarfsverkefni Rauða kross Íslands og Þróunarsamvinnustofnunar Íslands rakið ásamt því að starfi Rauða krossins, bæði á alþjóðlegum vettvangi og hér á Íslandi eru gerð skil. Í lokakafla ritgerarðinnar og niðurstöðum höfundar er að finna umfjöllun um öll þau vandkvæði sem upp komu í samstarfsverkefninu er fjallað var um og þau metin út frá kenningarlegum hluta ritgerðarinnar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA verkefni - lokaeintak2.pdf | 157.5 kB | Opinn | Samstarfsverkefni Rauða kross Íslands-heild | Skoða/Opna |