is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Bifröst > Viðskiptadeild > Meistaraverkefni í viðskiptadeild (MS) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16124

Titill: 
  • Hvernig er hægt að auka virði íslenskra sjávarafurða á forsendum sjálfbærni, gegnsæi og hagkvæmni?
  • Titill er á ensku How to increase the value of Icelandic seafood in terms of sustainability, transparency and efficiency?
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Markmið þessa verkefnis er að kanna hvernig hægt sé að auka virði íslenskra sjávarafurða á forsendum sjálfbærni, gegnsæi og hagkvæmni. Undanfarin ár hefur umhverfisvitund vesturlandabúa aukist töluvert og eru neytendur orðnir meðvitaðri um hvaðan afurðir koma og hver framleiðir þær. Hér á landi ríkir fiskveiðistjórnunarkerfi sem stuðlar að sjálfbærni, öflug tækni og mikil þekking og reynsla á sviði sjávarútvegsmála. Spurning er hvernig hægt sé að nýta þessa krafta til að auka virði afurðarinnar.
    Gerð var markaðskönnun í Bretlandi og Bandaríkjunum og kannað hvort mögulegur markaður væri fyrir viðskiptahugmynd sem byggist á sölu fiskafurða sem veidd eru á sjálfbæran hátt. Sérstæða hugmyndarinnar er að hanna rekjanleika forrit sem gerir neytendum kleyft að rekja afurðina á tæknilegan hátt. Tilgangur markaðskönnunnar var annarsvegar til að fá raunhæfar upplýsingar í gerð sölu- og fjárhagsáætlunar og hinsvegar að fá upplýsingar um markaðinn. Út frá fræðilegri umfjöllum, fjárhagsáætlun og markaðsrannsókn var lagt mat á það hvort viðskiptahugmyndin gæti átt sér stað í raunveruleikanum.
    Niðurstöður úr könnuninni voru sambærilegar fyrri könnunum sem snéru að viðhorfi neytenda til sjálfbærni, flest allir svarendur voru sammála því að þegar kemur að vali á sjávarfangi skiptir máli að velja sjálfbært. Niðurstöður benda til að markaður fyrir viðskiptahugmynd sem þessa gæti verið til staðar og mögulega er hægt að framkvæma hugmyndina á hagkvæman hátt.

  • Útdráttur er á ensku

    The purpose of this thesis is to find out how to increase the value of Icelandic fish in terms of sustainability, transparency and efficiency. In recent years, environmental awareness has increased and consumers care more about where products come from and who produces it. In Iceland there is a fisheries management system that promotes sustainability, good technology and experience in the field of fisheries. The question is how to use it to increase the value of the products.
    Market research was conducted in the UK and US to explore whether the potential markets are interested in a business idea based on sustainable fisheries. The concept focuses on selling fish overseas that are caught with sustainable methods and allow consumer to trace the fish to its origin in a technical way. The purpose of the market research was to get realistic information to make a financial plan and also to get information about the market. From this information it is possible to evaluate whether the business is feasible.
    The results of the survey were similar to others results that have been made on a same topic. Most of the respondents agreed that the selection of sustainable seafood is important when it comes to purchasing. Results indicate that the market for the business idea could be present and be performed in an economical way.

Athugasemdir: 
  • Ritgerðin er lokuð til júní 2016
Samþykkt: 
  • 8.8.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/16124


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaverkefni_Katrín_Pálsdóttir,_2201843079_LOKA.pdf2.53 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna