Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1614
Í verki þessu er gefin innsýn í hina sameiginlegu landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins og þá stefnu sem mótuð hefur verið innan sambandsins varðandi styrki til landbúnaðar. Samofin umfjölluninni er staða landbúnaðarmála á Íslandi og möguleg aðild Íslands að ESB, og hugsanleg áhrif þess á íslenskan landbúnað. Landbúnaðarkerfi Evrópusambandsins er ein af grunneiningum sambandsins og viðamikill þáttur í starfsemi þess. Kerfið hefur verið til gagngerar endurskoðunar á síðustu árum í kjölfar stækkunar ESB og áherslubreytinga í landbúnaðarmálum. Það er því megin tilgangur ritgerðarinnar, eins og titill hennar gefur til kynna, að gefa yfirlit yfir þær meginreglur og forsendur sem landbúnaðarkerfi ESB byggir á í dag. Þá verður leytast við að svara þeirri spurningu hvort íslenskir bændur gætu haft hag af aðild að hinni sameiginlegu landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins ef til kæmi aðild Íslands að sambandinu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA-ritgerðinHVG.pdf | 328.23 kB | Opinn | "Gætu íslenskir bændur haft hag af aðild að landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins? - Meginreglur í stefnu, stjórnun og styrkjakerfi" - heild | Skoða/Opna |