is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1615

Titill: 
  • Parísarreglur Sameinuðu þjóðanna um þjóðfestar mannréttindastofnanir
Námsstig: 
  • Bakkalár
Höfundur: 
Útdráttur: 
  • Efni þessarar ritgerðar er svokallaðar Parísarreglur um þjóðfestar mannréttindastofnanir sem samþykktar voru á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna árið 1993. Reglurnar eru mjög sveigjanlegar í framkvæmd og því geta margar tegundir stofnana fallið undir þær s.s. mannréttinda- og jafnræðisstofnanir, umboðsmenn þjóðþinga og aðrir umboðsmenn. Þessar stofnanir hafa allar ákveðin grundvallar einkenni sem reglurnar innihalda. Hlutverk þeirra er meðal annars að vernda og efla mannréttindi og jafnréttindi en auk þess skal starfsemi þeirra og sjálfræði tryggð með lögum.
    Alþjóðleg samvinnunefnd sem starfar á vegum Heimssambands þjóðfestra mannréttindastofnana (ICC) hefur veitt sextíu stofnunum um heim allan fulla viðurkenningu samkvæmt Parísarreglunum. Fjallað verður um embætti danska umboðsmannsins ásamt embætti umboðsmanns Alþingis þar sem þeir uppfylla að hluta til Parísarreglurnar en flokkast þó ekki sem þjóðfestar stofnanir. Sagt verður frá Mannréttindastofnun Danmerkur og Mannréttindaskrifstofu Íslands og starfsemi þeirra borin saman með tilliti til Parísarreglnanna.
    Að lokum verða tekin saman rök fyrir því af hverju íslensk stjórnvöld ættu að hlíta tilmælum Sameinuðu þjóðanna um þjóðfestar mannréttindastofnanir og koma slíkri stofnun á fót á Íslandi.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað
Samþykkt: 
  • 9.7.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1615


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Efnisyfirlit.pdf152.48 kBOpinn"Parísarreglur Sameinuðu þjóðanna"-efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
parísarreglurnar um þjóðfestar mannréttindastofnanir.pdf809.52 kBLokaður"Parísarreglur Sameinuðu þjóðanna"-heildPDF
útdráttur.pdf126.72 kBOpinn"Parísarreglur Sameinuðu þjóðanna"-útdrátturPDFSkoða/Opna
Viðauki og heimildaskrá.pdf231.88 kBOpinn"Parísarreglur Sameinuðu þjóðanna"-viðauki og heimildaskráPDFSkoða/Opna