is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Bifröst > Viðskiptadeild > Lokaverkefni í viðskiptadeild (BS) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16181

Titill: 
  • Samfélagsleg ábyrgð skyndibitastaða á Íslandi
  • Titill er á ensku Corporate social responsibility of fast food resturants in Iceland
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Áhugi almennings á samfélagslegri ábyrgð fyrirtækja hefur farið sívaxandi á síðustu áratugum. Heimurinn er í stöðugri þróun og er almenningur farinn að fylgjast betur með siðferðislegum þáttum fyrirtækja ásamt því að eiga viðskipti frekar við þau fyrirtæki sem sýna samfélagslega ábyrgð.
    Hugtakið samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja hefur verið í þróun í áratugi en virðist skilgreining Archie. B. Carroll vera mjög mikið notuð þar sem hann skiptir ábyrgð fyrirtækja í fjögur stig, efnahagslega ábyrgð, lagalega ábyrgð, siðferðilega ábyrgð og valkvæða ábyrgð. Fyrsta skilgreining hugtaksins sem er í líkingu við þær skilgreiningar sem sjást í dag kom fyrst upp á sjónarsviðið þegar Howard R. Bowen kom með skilgreiningu á samfélagslegri ábyrgð fyrirtækja á sjötta og sjöunda áratuginum.
    Með auknu hlutfalli ofþyngdar og offitu fólks, sérstaklega í hinum vestræna heimi, langaði höfundi að skoða hvort almenningi fyndist skyndibitastaðir samfélagslega ábyrgir og hvort aukinn þrýstingur sé á þau fyrirtæki. Endurvinnsla, orkusparnaður, mannauður og svo margir hlutir koma að samfélagslegri ábyrgð fyrirtækja sem eru helst til jákvæðir fyrir samfélagið.
    Megindleg rannsókn var gerð með rafrænni skoðanakönnun sem send var á nemendur og starfsfólk Háskólans á Bifröst. Einnig var útbúinn viðburður á samskiptasíðunni Facebook þar sem yfir 2000 manns var boðið að taka þátt. Margir deildu könnuninni á sína síðu til að fá fleiri til að svara.
    Helstu niðurstöður eru þær að aukinn þrýstingur virðist vera á skyndibitastaði miðað við svör þátttakenda. Stór hópur telur skyndibitastaðina ekki vera samfélagslega ábyrga en stórt hlutfall sækist skyndibitastaðina, helst yngsti hópurinn. Að sama skapi virðist nokkuð stór hópur reyna að forðast staðina.

Samþykkt: 
  • 20.8.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/16181


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BS-ritgerð_-_Arndís_Kristinsdóttir.pdf3.2 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna