Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16183
Viðfangsefni þessarar ritgerðar er að greina og rýna í fjármál í opinberum framhaldsskóla á Íslandi. Á undanförnum árum hefur verið lögð æ ríkari áhersla á hagræðingu í opinberum rekstri og framlög til reksturs stofnana íslenska ríkisins markvisst verið skorin niður. Hafa stjórnendur í framhaldsskólum ekki farið varhluta af niðurskurðinum frekar en stjórnendur annarra opinberra stofnana.
Rannsóknarhluti ritgerðarinnar fólst í því að greina fjárhagsupplýsingar Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi sem er til umfjöllunar í þessari ritgerð. Auk þess voru skoðuð lög og reglugerðir sem snerta starfsemina, kjarasamningar og samstarfssamningar skoðaðar auk þess sem rætt var við stjórnendur stofnunarinnar. Tilgangur rannsóknarinnar var að finna hvaða liðir í rekstrinum hafa áhrif á breytingu á kennslukostnaði og greina jaðarkostnað viðbótarhóps í kennslu.
Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að laun vegna kennslu er eini beini áhrifavaldurinn í kennslukostnaði og jaðarkostnaður hvers hóp í kennslu er kr. 684.110.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS_ritgerdin_Kennslukostnadur_i_framhaldsskola_lokaeintak_til_skila.pdf | 1.4 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |