Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16185
Umhverfið sem bankar starfa í er fremur ólíkt því umhverfi sem hefðbundin fyrirtæki starfa í. Strangari reglur og meira eftirlit fylgja bankastarfsemi ásamt því að erfitt getur verið að finna hvert vægi skulda er á móti eigin fé og endurfjárfestingaþörf bankanna. Verðmat á bönkum er því töluvert frábrugðið verðmati annara fyrirtækja. Í ritgerðinni er starfsemi banka útskýrð og hvernig efnahagsreikningur banka er frábrugðinn efnahagsreikningi almennra fyrirtækja. Samkvæmt fræðunum virðist yfirleitt svo vera að við verðmat á bönkum er lögð meiri áhersla á að finna verðmæti eigin fjár fremur en heildarverðmæti. Við verðmat á bönkum styðjast höfundar við fræðilegar kenningar úr ýmsum fræðigreinum sem og fræðibókum. Höfundar verðmátu Íslandsbanka.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Verðmat.pdf | 7.45 MB | Lokaður til...06.07.2024 | Heildartexti |