Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16193
Mikill vöxtur hefur verið um allan heim í ferðaþjónustu, enda er hún sívaxandi atvinnugrein. Samkeppni í ferðaþjónustu á alþjóðamarkaði er mikil og sífellt fleiri ríki bítast um athygli ferðamanna. Þetta er stór markhópur sem mikilvægt er að leggja áherslu í markaðssetningu með þjónustu og vöruframboði. Því er brýnt að innlend verslun sé samkeppnishæf á alþjóðavísu. Endurgreiðsla á virðisaukaskatti til erlendra ferðamanna var tekin upp hér á landi í því skyni að auka samkeppnisstöðu og efla innlenda verslun. Þegar verslað er Tax Free þá er átt við að hægt sé að fá hluta af virðisaukaskatti af kaupum á vörum endurgreiddan við brottför að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Í ritgerðinni verður leitast við að kanna nánar Tax Free endurgreiðslur til erlendra ferðamanna og líta til þess hvert endurgreiðsluhlutfallið sé hér á landi samanborið við önnur ríki á norðurslóðum, þ.e. Danmörk, Noreg og Svíþjóð.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS_ritgerð_Lokaverkefni_2013_Guðrún_Antonsdóttir.pdf | 700.32 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |