is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/161

Titill: 
  • Örvun lestrarnáms í leikskóla
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Lestur er undirstaða frekari menntunar og í raun byggist ótrúlega margt í lífi okkar á texta í einni eða annarri mynd. Talið er sjálfsagt að allir heilbrigðir einstaklingar geti lært að lesa og geti tileinkað sér þekkingu úr rituðu máli. Flest okkar lærum að lesa án mikilla erfiðleika en þó er það ekki öllum gefið að ná þessari færni fyrirhafnarlaust
    Tilgangurinn með þessu verkefninu er að skoða möguleika leikskólans til þess að örva lestrarfærni barna. Í fræðilegum kafla er fjallað um máltöku og málþroska barna og er sérstök áhersla lögð á hljóðkerfisvitund einnig lestrarnám og lestrarörðugleika. Við kynnum greiningartæki sem notað er í leikskólum til þess að uppgötva börn sem gætu átt í lestrarörðugleikum síðar og einnig fjöllum við um skimunarpróf sem er notað í 1. bekk grunnskóla í sama tilgangi. Í síðari hluta verkefnisins leggjum við áherslu á mikilvæga þætti til þjálfunar lestrarnáms hjá leikskólabörnum - m.a í gegnum leik, markvissa málörvun, og hljóðkerfisvitund.
    Helstu niðurstöður okkar eru þær að það sé mikilvægt að börn sem hugsanlega gætu átt við lestrarörðugleika að etja síðar séu uppgötvuð í leikskóla Einnig að leikskólinn sé kjörinn vettvangur til þess að örva lestrarþjálfun hjá börnum. Nokkrar leiðir eru til að vinna á örðugleikunum þó svo að þeir verði alltaf til staðar. Mikilvægt er að leikskólakennarinn byrji snemma að vinna markvisst með börnum og þá helst með hljóðkerfisvitund, en hún er mikilvæg undirstaða lestrarnáms. Ef öll börn hefðu leikskólakennara sem hjálpar til og vinnur markvisst með þessa þætti gæti lífið orðið mun auðveldara fyrir marga þegar að formlegu lestrarnámi kemur.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2004
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/161


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
orvun.pdf426.29 kBTakmarkaðurÖrvun lestrarnáms í leikskóla - heildPDF
orvun_e.pdf85.15 kBOpinnÖrvun lestrarnáms í leikskóla - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
orvun_u.pdf70.41 kBOpinnÖrvun lestrarnáms í leikskóla - útdrátturPDFSkoða/Opna
orvun_h.pdf140 kBOpinnÖrvun lestrarnáms í leikskóla - heimildaskráPDFSkoða/Opna