Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16248
Hafa líkamlegir þættir áhrif á árangur í handknattleik? Markmið þessarar rannsóknar var að kanna áhrif líkamlegra þátta á árangur í handknattleik. 100 þátttakendur úr 8 liðum í efstu deild karla á Íslandi tóku þátt í rannsókninni. Þátttakendur þreyttu uppstökkspróf ásamt hæðar- og þyngdarmælingum. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að hornamenn eru að meðaltali lægri, léttari og með lægri líkamsþyngdarstuðul en aðrir leikmenn á vellinum. Þau lið sem komust í úrslitakeppni tímabilið 2012-2013 voru léttari, hærri og með lægri líkamsþyngdarstuðul að meðaltali miðað við þau lið sem ekki komust í úrslitakeppni. Niðurstöður þóttu hins vegar ekki marktækar og því ekki hægt að alhæfa um þær. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu einnig fram á neikvæða fylgni milli þyngdar og stökkhæðar leikmanna. Það er því hægt að álykta það að eftir því sem leikmenn þyngjast því lægri er stökkhæð þeirra.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni.pdf | 563.27 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |